Ábendingar hafa borist um útvarpsauglýsingar frá Bónusvídeó sem hafa a.m.k. verið á FM 957 og Gullbylgjunni. Það tilkynnist hér með að notkun nafns Svavars Lútherssonar í auglýsingunni fór fram án þess að haft hafi verið samband við hann áður. Notkunin er því í leyfisleysi.
Ekki hefur verið ákveðið hver viðbrögð við auglýsingunni verða á þessu stigi málsins.
Nánar um málið á kjarrval.is.
—-
Viðbót 24. júní 2008
Færslan á kjarrval.is hefur verið uppfærð með tíðindum úr málinu. Í stuttu máli greinir hún frá því að auglýsingin er ekki lengur í birtingu og engin ástæða er til að aðhafast neitt frekar í málinu.