Istorrent bloggið Fréttir og ýmsar tilkynningar

22 November 2008

Aðalmeðferð fyrir héraðsdómi í janúar

Filed under: Almennt — Svavar Kjarrval @ 12:48

Miðvikudaginn 7. janúar á hinu nýja ári mun vera aðalmeðferð í 2. umferð Istorrent-málsins. Þingið er í sal 1 og hefst kl. 9:00 og verður til kl. 14:00 (áætlað). Um er að ræða opið þinghald sem þýðir að almenningur er velkominn í salinn á meðan pláss leyfir. Eftir það mun dómari ásamt meðdómendum ígrunda málavexti og kveða upp dóm þegar niðurstaða liggur fyrir (líklegast ekki samdægurs).

VARÚÐ: Mun innihalda mikið lögfræðiblaður.

8 Comments »

  1. Lögfræðiblaður or not, I’ll be there ;]

    Comment by PatriotX — 29 November 2008 @ 02:39

  2. Ég verð með þér í anda sjái ég mér ekki fært að mæta! Gangi þér vel!

    Comment by Paper — 2 December 2008 @ 09:09

  3. Því miður er ég á norðurlandi og get ekki mætt.. en annars myndi ég mæta..

    Comment by IceFox — 5 December 2008 @ 03:31

  4. fáðu bara leyfi firir vefmyndavél og settu hérna á síðuna.

    Comment by guds777 — 24 December 2008 @ 11:55

  5. Efast um að ég fái aðgang að nettengingu héraðsdóms til að senda út fæðið. Það yrði fræðandi fyrir almenning að vita hvernig málflutningur er í dómsmáli en það er talsvert betra að mæta á staðinn. Það er engin skuldbinding falin í því að mæta og getur því fólk komið og farið að vild. Að öllum líkindum verður hádegishlé svo það borgar sig ekki að gera ráð fyrir að skreppa í réttarsalinn í hádegishlénu.

    Ég sjálfur áætla að vera þarna allan tímann til að skrá niður atburði dagsins. Útdrátturinn ætti að vera tilbúinn sama dag eða þann næsta.

    Comment by Svavar Kjarrval — 25 December 2008 @ 05:10

  6. Gleðileg jól!

    Comment by Primor — 25 December 2008 @ 05:39

  7. Vá þetta hefur tekið langan tíma Svavar. Ertu ekki smeykur um að þegar þessu lýkur vinni Istorrent málið alveg að torrent.is nái sér aldrei á strik?. Heyrði svo einhverstaðar fyrir langa löngu að Smáis ætlaði bara að halda þér í réttarsalnum þangað til þú værir orðin gjaldþrota. Ég hætti almennilega að fylgjast með þessu í ágúst,sept núna í ár þar sem þetta var bara sagan endalausa.

    Comment by Plebbi — 31 December 2008 @ 05:45

  8. ég segji bara mína skoðun ég mundi fara strax á istorrent..móralinn er svo leiðilegu á hinum síðunum finnst mér. En ég kemst ekki en e´g mun senda heila andann minn á staðinn

    Comment by maggi187 — 5 January 2009 @ 10:37

RSS feed for comments on this post.

Leave a comment

You must be logged in to post a comment.

Powered by WordPress