Hæstiréttur kvað upp úrskurð 8. maí í Istorrent-málinu svokallaða (hrd. 194/2008) um að málinu skuli vísað frá. Af því leiðir að Istorrent hefur unnið málið og rétthafasamtökin fjögur skulu því greiða samtals 900 þúsund í málskostnað fyrir héraðsdómi og Hæstarétti. Málið hefur kostað Istorrent yfir 3,5 milljónir fyrir héraðsdómi en ekki liggja fyrir kostnaðartölur vegna rekstur þess fyrir Hæstarétt. Samkvæmt lögbannslögum fellur lögbannið sjálfkrafa úr gildi um miðnætti aðfaranætur föstudagsins 16. maí. Áætlað er að reisa aftur skráardeilihlutann síðar sama dag ef ekkert stendur því að vegi.
Fyrri grein dagsins var send inn í nótt en fréttir um úrskurðinn bárust nú í morgun og er það afar skemmtileg tilviljun að svo hafi hitt á. Fréttatilkynning verður send út síðar til fréttamiðla og einnig birt hér. Þeir fréttamiðlar sem vilja tryggja sér eintak þurfa að hafa samband við media@torrent.is eða bíða eftir birtingu hér.
til hamingju
Frábært!!
Til hamingju! 😀
Til hamingju Svavar!!! :D:D:D
glertær snilld.
þurfa “rétthafasamtökin” ekki að borga þér eitthvað ?
Glæsilegt! Vonandi láta þeir sér þetta segjast og reyna nú að vinna með tækninni heldur en á móti.
paper þá gæti snæbjörn alveg eins sagt upp starfinu sínu
Allavegana skref í rétta átt.
opnar þá ekki síðan aftur ?
hérna ef síðann opnar aftur verða þá allir accountarnir gerðir virkir sem til voru einsog ég áttu auðvitað account mund ég geta notað hann á síðunni eða þarf ég að redda mér boðslykli???
hvenær kemur hún á mrg?
Til hamingju, Istorrent lengi lifi!